Fjallafréttir

20.03.2008 16:08:21 / fjallafrettir

íbúð óskast!

Hæ hæ, er alveg að detta útúr þessum bloggheimi, er svo mikið að gera á facebook að maður gleymir öllu öðru:$

Annars er er allt gott að frétta nema það að okkur sárvantar íbúð á viðráðanlegu verði.
Geðveiki að vera að leita núna og þar sem ég er að vinna nánast sjálfboðavinnu á hrafnistu þá getum við ekki borgað 140 þús fyrir 2 herbergja íbúð. við kannski endum bara á því að fara með tjald niður í laugadal, ef það er laust þar ennþá, eflaust fullt af fólki í sömu sporum og við.

'Eg fór í 20 vikna sónar í gær og gekk bara vel, þarf samt að fara aftur á þriðjudag því hún vill sjá magann þegar dúllan mín er með meiri næringu í maganum. Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur segir hún.
Allt annað kom mjög vel út og áætlaður fæðingadagur er 7. ágúst.

Ég er byrjuð á næturvöktum svo ég verð ekki viðræðuhæf yfir páskana, aðeins fleiri krónur fyrir það8)

jæja þetta er komið gott í bili
heyrumst:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 15:32:16 / fjallafrettir

....

     Sorry hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast, bara búið að vera mikið að gera 8)

     Ég og Thelma héldum upp á afmælin okkar 6 okt í glerinu og það heppnaðist mjög vel, góð mæting og allir skemmtu sér konunglega.

     Ég er byrjuð að vinna á Hrafnistu , það er rosalega gaman en dáldið erfitt líka.

Segi ykkur meira seinna. :haha:

    

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 12:06:09 / fjallafrettir

Ég er komin komin komin komin komin í fílinginn :)

Þá er það skollið á....mín bara orðin þrítug.

Finn samt enga rosa breytingu nema kannski helst að það eru allir með rosa áhyggjur af því að ég sé ekki komin með kall upp á arminn.

Það mætti halda að það væri hrikalegur sjúkdómur að vera að lausu miðað við áhyggjurnar í fólki.

En ég held að ég ætli að bíða með taugaáfallið til fertugs, ef ég væri búin að festa mig með einhverjum karli þá væri hann nú eflaust ekki besti kosturinn þar sem ég hef nú ekki haft gott auga fyrir góðum karlkosti hingað til, ekki satt?:haha:

Annars er allt ljómandi gott að frétta af mér sambúðin hér í kommúnunni gengur vel.

Ég og Jóna fórum í leitir síðustu helgi og skemmtum okkur ógeðslega vel, mikið djammað og mikið sungið 8)

jæja þetta er komið gott í bili

see ya


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 18:13:42 / fjallafrettir

Jæja, er ekki kominn tími á nokkrar línur??

Þetta sumar var ansi fljótt að líða, vinna og flakk um landið.

Fórum aðeins norður að slappa af, hitta familíuna, mála og grilla silung (nammi namm)

Var að vinna um verslunarmannahelgina (as always) en við létum okkur ekki leiðast, á föstudegunm hélum við brjálað partý,fórum á lagafljótsorminn í siglingu á laugadeginum, og  í heita pottinn á Laugavöllum á sunnudagskvöldinu, geri aðrir betur.8)

Og nýjustu fréttir eru þær að ég er að flytja úr litla kotinu mínu í einbýlishús:!:

Nei, ég var ekki að vinna í lottó, heldur erum við sex sem ætlum að leigja saman þetta sparar okkur öllum pening þar sem það er geðveiki að ætla að reyna að leigja einn í dag.

Þetta verður bara gaman held ég og kannski smá séns að maður nenni frekar að elda stundum, það er ekki gaman að elda fyrir einn;)

Þetta er komið gott í bili

see ya 8)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 23:26:41 / fjallafrettir

Beta Rokk 2007

Ójá ég var sko á úthátíð aldarinnar um helgina!!

Beta sem er að vinna hérna uppfrá átti 25 ára afmæli um helgina og bauð fullt af æðislegu fólki í garðpartý til sín á Mývatni.

'Eg, Björgvin, Erla og Maggý mættum til hennar á föstudeginum og tjölduðum í garðinum hjá Betu, kíktum á barinn og hittum vini Betu fórum svo aftur heim og tjölduðum fleiri tjöldum óg drukkum öl.

Svo á laugadeginum lákum við gjörsamlega útúr tjöldunum af hita um tíu leytið og fórum í sólbað, og lágum þar til fjögur sullandi í bjór og vorum öll vel bökuð þegar við drulluðumst loksins í sturtu.

Svo var farið að klára undibúning fyrir grillveisluna sem gekk mjög vel, rosalega gott kjöt og bollan fékk 10 stjörnur8) (Erla þú mátt blanda bollu fyrir hvert partý):haha:

Svo fóru að tínast fleiri í hópinn, það komu mjög margir frá Kárahnjúkum og svo allir vinir og fjölskylda Betu og flestir held ég úr fjölskyldunni hennar Rósu líka

Svo voru allir í svo góðum gír  það var dansað og sungið og sullað fram á morgun:klikk:

Þetta heppnaðist í alla staði mjög vel og var æðislega gaman, mig langaði á þjóðhátíð en ég held hún geti ekki toppað þessa frábæru helgi á Mývatni sem endaði  að sjálfsögðu í lóninu:D

Elsku Beta mín takk fyrir að bjóða mér og öllum skemmtilegu vinum þínum, og takk fyrir að vera til dúllan mín :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 21:33:33 / fjallafrettir

hæbbs

 Við héldum nokkuð gott eurovision/kosningaparty á laugardaginn uppfrá, mikið djammað, dansað, hlegið, og mig minnir að það hafi verið sprengdar nokkrar XD blöðrur8) og sullaðist eitthvað líka af bjór, allaveg mjög gaman.

Við ákváðum að gera smá kveðjuhrekk í herberginu hans Balla, Við fylltum baðherbergið af sundurtættum dagblöðum, og settum nokkrar mjög stórar fötur á gólfið og settum svo lítil plasglös allstaðar þar sem var pláss á gólfinu, ojá og bæði föturnar og glösin voru stútfull af vatni :)

En við erum ekki bestu hrekkjusvínin því við hjálpuðum til við að ganga frá þessu öllu:$

 

'Eg kom í frí í gærkvöldi, kíkti í kaffi til Jónu og þar sátum við í stresskasti því að Sísí og Búbú voru að leika sér með hlussustóra randaflugu í glugganum. ég fæ bara hjartsláttartruflanir þegar ég heyri suðið í þessum kvikindum.  En við lifðum þetta af. :)

 Í dag kíkti ég í afmæliskaffi hjá Jónu og familíunni hennar og borðaði yfir mig held ég af kræsingum.

Á morgun verður svo brjálað afmælispartý á glaumbar, svo ég verð pottþétt ekki viðræðuhæf á laugardaginn 8)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 18:54:01 / fjallafrettir

Mobile

27-04-07_1849.jpeg Chili kjúklingur,hrísgrjón og gular baunir í kvöldmat. Lofar gódu :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 12:04:01 / fjallafrettir

Mobile

26-04-07_1159.jpeg Bara ad leyfa ykkur ad njóta sumarblídunnar med okkur :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 18:39:29 / fjallafrettir

Gleðilegt sumar

 Gleðilegt sumar :) nú er ég í fríi og ósköp lítið að frétta eins og vanalega, er bara að slappa af í litla sæta kotinu mínu.

Segjum þetta gott í bili, og hafið það gott :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 16:24:03 / fjallafrettir

Gleðilega páska :)

Ég er búin að fá tvo málshætti:

Af góðum hug koma góð ráð

og seint fyrnast fornar ástir

alltaf opin fyrir góðum ráðum

en ég ætla allavega ekki

að halda niðri í mér andanum

í sambandi við seinni málsháttinn 8)

hafið það nú gott í dag dúllurnar mínar


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 22:37:57 / fjallafrettir

skoðanakönnun!!

Takið þátt í skoðanakönnuninni sem ég setti inn :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 07:17:11 / fjallafrettir

Góðann daginn :)

Haldiði að mín hafi ekki bara vaknað klukkan 6 í morgun :haha:

Við systur erum bara 2 núna því kokkurinn skellti sér til spánar í sólina, en svo kemur annar í kvöld og reddar helginni.

Við verðum í fríi um páskana, ég man ekki hvenær það gerðist síðast:$

Það er búið að vera mjög gott veður hér og höfum ekkert þurft að moka, bara sól og sæla.

Mamma fór á tónleikana með Cliff Richard og skemmti sér brjálæðislega vel, mér heyrist hún nú bara hafa yngst um 20 ár8)

Það eiga allir að fara á tónleika öðru hvoru því það er svo allt öðruvísi en að kveikja bara á útvarpinu, miklu meiri stemming og upplifun.

Jæja ég ætla að fara gera eitthvað hérna

bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 00:23:26 / fjallafrettir

Loksins

Loksins er ég búin að koma nokkrum myndum inn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 18:11:07 / fjallafrettir

snjór, snjór og ennþá meiri snjór

Hér á fjallinu snjóar og snjóar, akkúrat núna er sól og blíða og það verið að moka frá öllum gluggum og neyðarútgöngum. Það var brjálað veður hér alla síðustu helgi og vegurinn lokaður. Annars er ósköp lítið að gerast hjá mér þessa dagana. Jú reyndar erum við systur farnar að vakna á réttum tíma á morgnana8) veit ekki hvort það er brjálaða klukkan sem Rósa keypti fyrir mig? eða kannski að það er orðið bjart í meira en 10 tíma á dag?  en örugglega er það bæði, kemur í ljós þegar gleymist að stilla klukkuna :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 09:36:01 / fjallafrettir

Mobile

03-03-07_0933.jpeg Tad snjóadi dálítid mikid í nótt

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
tékkið á þessu